Draumaheimur Madison
Önnur blogg
Myndir
Litla Gullið
Reynir Árskógsströnd
Frítt SMS
16.01.2008 17:13:32 / maddi

Tilbð á fFord focus

Rýmum fyrir nýjum Ford Focus: Síðustu bílarnir á frábæru tilboði!

Ford Focus Trend Collection 5 dyra 1,6 Bensín Beinskiptur

Nýr og endurhannaður Ford Focus er væntanlegur í byrjun mars. Til að rýma til fyrir nýja bílnum bjóðum við núverandi bíl á frábæru tilboði.
Við eigum aðeins níu bíla af gerðinni Focus Trend Collection og bjóðum þá á sérlega hagstæðu tilboði.

Focus Trend Collection er einstaklega vel búinn og má þar nefna upphitanlega framrúða (þú þarft aldrei að skafa), tölvustýrða miðstöð með loftkælingu, upphitanleg og hæðarstillanleg framsæti og rafdrifna hækkun á ökumannssæti, kastara að framan, stöðugleikastýrikerfi með spólvörn, 4 öryggispúða og 2 loftpúðagardínur í hliðum ásamt fjölmörgu öðru.

Við eigum þessa skemmtilegu fjölskyldubíla í bæði fimm dyra útfærslu og station og einnig með 1,6i bensínvélinni og 1,6TDCi dísilvélinni.

Við bjóðum nú þessa frábæru og vel búnu Focus Trend Collection bíla með kr. 100.000 í afslætti.
Dæmi: Focus Trend Collection 1,6i station og 5 gíra kostar kr. 2.280.000 en við bjóðum hann núna á kr. 2.180.000. Einnig má sjá hér að neðan tilboð á Focus Trend Collection 1,6i 5 dyra og 5 gíra.

Nýttu þér tækifærið og eignastu þennan margverðlaunaða bíl á sérlega hagstæðu verði. Mundu að það eru aðeins 6 bílar eftir. Komdu núna!
 \"Tilboðs

Bíll á mynd 2.220.000
Tilboð        2.120.000

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 11:43:49 / maddi

Nýr liður á bloggi. Bíll vikunnar

Ég ætla byrja með nýjan lið sem mun heita bíll vikunar, Það verða aðalegar bílar sem ég tel vera kjara kaup eða bílar sem ég er sjálfur spenntur fyrir og er með söluumboð fyrir.

Bíll vikunnar að þessu sinni er Volvo s40, "2004 árg, ekinn 23,þús/km, 125 hö. Þetta er fallegur bíll í alla staði jafnt bæði innan sem utan. Það er algjör draumur að keyra svona bíl og satt að segja er ég ástfangin af þessum bíl og nýju Mazda6 bílnum sem er hérna úti. Eins og þið takið eftir er keyrslan á honum í algjöru lámarki. Verð á bíl er 1,890,000KR 

Þeir sem hafa áhuga geta hringt í síma 4622703 eða 8622211 og beðið um Valdimar


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 15:35:45 / maddi

Minningar blog um Jóhann Valdimar Kjartansson Fæddur 2. nóv 1983 - Dáinn 27.nóv 2007

Fyrir nokkrum mínútum fekk ég þær fréttir að þú værir horfinn á braut minn kæri frændi. Þú hafðir látið undan í baráttunni við þinn erfiða sjúkdóm. Þú varst búinn að vera svo duglegur og harður af þér að þú verður ekki sakaður um að hafa ekki veitt sjúkdómi þínum harða mótspyrnu. Læknarnir sögðu á föstudagin seinasta að nú væri líklega komið að loka stundinni og var farið að safna systkynum þínum saman til að geta kvatt þig. Ég get ekki lýst því hversu þakklátur ég var að eiga erindi til Reykjavíkur þennan sama föstudag þannig ég gat komið og kíkt á þig. Þú varst reyndar sofandi og áttir ekki að geta vaknað aftur. Það hjálpaði mér mjög mikið að fá loksins að hitta þig og spjalla aðeins við þig þó þú gast auðvitað ekki svarað mér. Þegar ég fór af sjúkrahúsinu bjóst ég við að þetta væri okkar kveðjustund. Ég var með hnútinn í maganum allan tíman þegar síminn hringdi því ég hélt alltaf að ég væri að fá fréttirnar sem okkur öllum sem þekktum þig höfum kviðið svo fyrir. Ekki kom símtalið þetta kvöld. Ég sinnti þeim erindum sem ég þurfti á laugardags morgunin og ákvað síðan að heyra í ömmu til að fá fréttir, klukkan var um 10 og ég átti ekki flug fyrr en seinnipart. Þegar ég tala við ömmu segist hún heldur betur vera með fréttir. Þú hafðir vaknað um morgunin, eitthvað sem átti ekki að geta gerst og beðið um mat því þú hefðir ekki verið búinn að borða í 2 daga. Ég flýtti mér eins og ég gat uppá sjúkrahús og eyddi með þér seinustu klukkutímunum mínum í borginni. Það var aðdáunarvert að sjá hvernig þú tókst á veikindum þínum og hversu bjartsýnn þú varst alltaf. Á meðan ég var hjá þér hafðiru enþá húmorinn í lagi þrátt fyrir allt sem hafði gengið á, þú hafðir líka óbilandi trú á að þú myndir hressast og ég mun seint gleyma þegar þú fórst að tala um hvernig tattú þú ætlaðir að fá þér þegar þér batnaði. Það átti að vera stór krókódíll og mynd af þér standandi á honum og myndin á þér væri stærri. Síðan spurðiru okkur hvort við skyldum hvað þú værir að meina. Við sögðum öll já en ekki veit ég hvort við skildum þig öll eins. Ég skildi þig allavega þannig að krókódíllinn væru veikindi þín og að þú myndir verða ofaná í baráttunni við krókódílinn. Þeir klukkutímar sem við eyddum saman á laugardagin voru ómetanlegir fyrir mér og ég vona að þeir hafi verið þér einhvers virði. Þegar komið var að því að ég færi heim spurðiru mig hvort ég vildi ekki bara gista hjá þér. Mér þótti vænt um að þú baðst mig um það en á móti fekk ég sting í hjartað að geta ekki veitt þér þá ósk þar sem það beið lítil dama á Akureyri eftir að pabbi sinn kæmi heim. Nú horfi ég á þessa ungu dömu og hugsa að enginn er óhultur fyrir dauðanum hvort það sé að völdum sjúkdóms eða slysa.

Ég ætla vona að við hin sem eftir erum í þessum lífi munum láta dauða þinn verða okkur sem vakning um að taka ekkert sem sjálfsagðan hlut og að nýta hvern einasta dag í lífinu. Lífið æðir svo hratt áfram að maður verður að gefa sér tíma til að staldra aðeins við og hugsa með sér hvað það er sem virkilega skiptir ´máli í okkar lífi og hlúa vel að því. Ef við þjótum í gegnum lífið án þess að stoppa þá eigum við eftir að ranka við okkur einn daginn og átta okkur á því að við höfum sóað svo miklum tíma í einskinsverða hluti.

Í dag dó drengur sem elskaði lífið og barðist meira en hægt var að fara framá svo hann gæti lifað og eitt sem mestum tíma með fjölskyldu sinni. Vonandi öðlastu frið og þá hvíld sem þú hafðir beðið eftir svo lengi þarna hinumegin elsku ´Jóhann minn. Þú ert hetja í mínum augum og þín verður sárt saknað elsku vinur.

Ég vil nota tækifærið og votta fjölskyldu Jóhanns innilega samúð mína. Guð verði með ykkur á þessu dimmu tímum.  


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 03:50:31 / maddi

Endurvakning á bloggi. og skáldsaga á bloggi

Jæja nú er kominn tími á að endurvekja bloggið mitt.

Mér hefur lengið langað til að skrifa eitthvað hérna inn en aldrei komið því í verk. Ég ætla að reyna fara af stað núna og blogga og í leiðinni skrifa mína fyrstu skáldsögu í gegnum bloggið. Ja skáldsögu er nú kanski full mikið, kanski verður þetta bara smásaga en ég ætla allavega að byrja á einhverju og síðan sjáum við bara hvernig það gengur. Ég veit sjálfur að ég er lélegur í stafsetningu og það er hundleiðinlegt að lesa texta fullan af stafsetningarvillum en ef þið ætlið að lesa þetta blogg hvað þá söguna mína þá verðið þið bara að búa ykkur undir það að það verða villur í henni og jafnvel hinar fáránlegustu stafsetningarvillur.

En þá er komið af því. Fyrsti kaflinn í sögunni:D

 

Úti er niða myrkur og ég hleyp eins og ég eigið lífið að leysa eftir malarveginum. Hjartað í mér slær hraðar en bassataktur í hröðu teknó lagi og ég finn hvernig adrenalínið flæðir um æðar mínar. Adrenalín er í raun svo mikið að ég næ ekki að meðtaka eina einustu hugsun sem kemur upp í huga mér heldur hleyp ég bara og get ekki hætt. Ég hleyp því ég veit að ef ég stoppa þá gæti það orðið það seinasta sem ég geri í þessu lífi. Eftir stutta stund freistast ég til að lýta um öxl, ég sé engan og engin ljós koma. Ég snar stoppa og skyma í kringum mig. Það er niða myrkur og ekkert mannvirki að sjá, aðeins malavegurinn sem ég hef hlaupið á seinustu mínúturnar og hraun allt í kring ásamt tunglinu sem virðist fylgja mér hvert sem ég fer eins og stór kastari. Ég fer af veginum og klöngrast út í hraunið. Lungun á mér eru að því komin að springa og ég get engan vegin dregið andan almennilega. Fæturnir geta ekki borið mig lengur því ég er nánast búinn að missa allan mátt úr þeim vegna þreytu og fæturnir skjálfa svo mikið að eina leiðin er að fara útí hraunið og fela sig til að geta hugsað hvernig ég get sloppið úr þessari vitleysu sem ég hef komið mér í. Um 100 metra frá veginum kem ég að gjótu sem ég næ að troða mér ofaní. Ég reyni að vera rólegur til að ná reglu á andadráttin en ég get það ómögulega útaf hræðslu. Loksins þegar ég hef stoppað og náð að grípa eina hugsun þá átta ég mig á, að ég hef komið mér í vandræði sem ég mun líklega ekki getað komið mér útúr. Ég er svo hræddur að ég er alveg við það að fara gráta en reyni þó að halda ró minni og vera sterkur. Tárinn byrja að láta sjá sig eitt af öðru og áður en ég veit af  eru þau farinn að streyma niður vangann og ég get ekki hamið gráturinn. Hvernig gat þetta komið fyrir mig? Maður sem fyrir einu og hálfu ári var í blóma lífsins. Hvernig gat lífið breyst svona snögglega úr því að vera í sambúð með ungabarn og vera klára háskólanám í það að vera sveittur, móður og hágrenjandi ofaní einhverjari hraungjótu. Ég hugsa til litlu stelpunar minnar sem alltaf finnst pabbi sinn svo frábær sama hversu illa hann klúðraði hlutunum. Hún er náttlega hálfgerður óviti greyið og veit ekki betur. Hún veit ekki hvernig faðir hennar hefur brugðist henni og í raun öllum í kringum sig. En ávalt var hún jafn glöð að sjá mig þó það hafi ekki verið mörg skipti seinustu mánuði. Ég skyndilega hrekk upp úr hugarheiminum við að ég heyri hljóð í fjarska. Ég kíki uppúr gjótunni og sé bílljós í koma úr þeirri átt sem ég kom hlaupandi. Bílnum er greinilega ekið hægt og beina farðegar bílsins vasaljósum út í hraunið. Hjartað á mér fer aftur á fullt og adrenalínið byrjar að sprautast af miklu magni út í blóðið. Bíllinn rétt skríður áfram og er kominn nánast á sama stað þar sem ég fór útaf veginum þegar hann stöðvast. Fjórir menn stýga út úr bílnum. Einn þeirra er lítill horaður og frekar fölur í andliti. Hann er mjög æstur og ég heyri hann öskra og blóta þaðan sem þeir eru. Hinir þrír eru yfir meðal hæð og töluvert þreknir. Allt í einu heyri ég nafnið mitt kallað. Ég lít örlítið upp úr gjótunni og sé að þeir eru byrjaðir að ganga hraunið í átt að gjótunni sem ég er í, beinandi vasaljósum sínum ofan í hverja einustu sprungur og gjótur.

Þeir stefna rakleitt á þann stað sem ég er á og innan örfárra mínútna munu þeir finna mig. Ég hef aldrei verið trúaður en eins og svo margir Íslendingar sækir maður í trúnna þegar maður þarf á einhverju að halda eins mikil hræsni og það nú er. Ég fer með faðir vorið ásamt því að ég sendi mínar seinustu hugsanir til dóttur minnar sem í næstu viku á tveggja ára afmæli. Í stað þess sem ég muni færa henni afmælisgjöf og eyða með henni afmælisdeginum, mun ég líklega yfirgefa hana fyrir fullt og allt. Þeir eru örfá metra í burtu og ég heyri þá nálgast. Ég veit að nú er komið að því.

Ég loka augunum og dreg djúft andan.

Ég hvísla

“Fyrirgefðu að ég brást þér Birta mín, pabbi elskar þig”.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 00:26:21 / maddi

Svarið við spurningu 2

Jæja svarið við spurningu 2 er: Myndin heytir 25th hour og er það enginn annar en Edward Norton sem fer með þessa ótrúlegu einræðu.

Ég ætla skrifa hana hérna á síðuna en ég hvet ykkur öll til að sjá þessa mynd einungis útaf þessari ræðu. Hún er gríðarlega flott og áhrifamikil í sjálfri myndinni.

Þetta er pínu langt en ég hvet ykkur til að lesa alla leið.

Þetta byrjar þannig að hann stendur fyrir framan spegil á klósetti þar sem er búið að skrifa "fuck you" á. og þegar hann segjir "Yeah, fuck you, too" fer spegilmyndin að tala við hann.

Yeah, fuck you, too.

Fuck me? Fuck you.

Fuck you and this whole city and everyone in it.

Fuck the panhandlers grubing for money, smiling at me behind my back.

Fuck the squeegee men, dirtying the windshield of my car.

Get a fucking job!

Fuck the Sikhs and Pakistanis, bombing down the avenues in decrepit cambs,

Curry steaming outta their pores, stinking up my day.

Terrorists in fucking training.

Slow the fuck down!

Fuck the Chelsea boys with their waxed chests and pumped-up biceps.

Going down on each other in my parks and on my piers,

jiggling their dicks on my channel35!

Fuck the Korean grocers, their pyramids overpriced fruit, their roses wrapped in plastic.

Ten years and still no speak-ee English.

Fuck the Russians in Brighton Beach.

Mobster thugs sitting in cafés, sipping tea in little glasses.

Sugar cubes between their teeth.

Wheeiling, dealing, scheming.

Go back where you came from!

Fuck the black-hatted Hasidim,

Strolling down 47th Street in their dirty gabardine with their dandruff,

Selling South African apartheid diamonds.

Fuck the Wall Street brokers, self-styled masters of the universe,

Michael Douglas, Gordon Gecko whannabe motherfuckers figuring out new ways to rob hard-workin people blind.

Send those Enrons assholes to jail for fucking life.

You think Bush and Cheney didn´t know about that shit? Give me a fucking break!

Tyco. ImClone. Adelphia.

Fuck the Puerto Ricans. 20 to a car, swelling up the welfare rolls.

Worst fucking parade in the city.

And don´t get me started on the dumb-in-the-cans because the make the Puerto Ricans look good.

Fuck the Bensonhurst Italians.

Pomaded hair, nylon warm-up suits, their ST Anthony medallions.

Swingin their Jason Giambi Louisville Slugger baseball bats,

for the auditioning for “The Sopranos”!

Fuck the Upper East Side wives with their Hermes scarves,

and $50 Balducci artichokes.

Overfed faces getting pulled, lifted and stretched all taut and shiny.

You´re not fooling anybody, sweetheart!

Fuck theuptown brothers.

They never pass the ball, never whanna play defence,

They take five steps on every lay-up to the hoop,

and they wanna blame it all on the white man.

Slavery ended 137 years ago.

Move the fuck on!

Fuck the corrupt cops with their anus-ciolating plungers and their 41 shot, standin behind a blue wall of silence.

You betray our trust!

Fuck the priests who put their hands down an innocent child´s pants.

Fuck the church that protects them, delivering us into evil.

And while you´re at it, fuck JC!

He got off easy.

A day on the cross a weekend in hell and all the hallelujahs of legioned angels for eternity.

Try seven years in fucking Otisville, J.

Fuck Osama Bin Laden, Al-Qaeda, backward-assed cave-dwelling fundamentalist assholes everywhere.

On the names of innocent thousands murdered.

I pray you spend the rest of eternity with you 72 whores roasting in a jet-fuelled fire in hell.

You towel-headed camel jockeys can kiss my royal Irish ass!

-Fuck Jacob Elinsky.

Whining malcontent. Fuck Francis Xavier Slaughtery, my best friend,

 Judging me while he stares at my girl´s ass.

Fuck naturell Riviera.

I gave her my trust and she stabbed me in the back.

Sold me up the river.

Fucking bitch.

Fuck my father with his endless grief, standing behind that bar, sipping on club soda,

Selling whiskey to firemen and cheering the Bronx Bombers.

Fuck this city and everyone in it.

From the rowhouses of Astoria to the penthouses on Park Avenue.

From the projects in the Bronx to the loft in SoHo.

From the tenements in Alphabet City to the brownstones in Park Slope,

to the split-levels in Staten Island.

Let an earthquake crumble it.

Let the fires rage.

Let it burn to fucking ash.

Then let the water rise and submerge this whole rat-infested place.

No...

No, fuck you, Montgomery Brogan.

You had it all and you threw it away, you dumb fuck!


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 19:33:44 / maddi

2 spurningar

Jæja Nú kem ég með 2 spurningar?

1.Hverja teljið þið vera bestu einræðu kvikmyndasögunar?

2.Hver er mín uppáhalds einræða í kvikmynd, hver fer með hana og í hvaða kvikmynd?

Endilega skjótið á hvað þið haldið.

Sá sem getur spurningu 2 rétt vinnur einstaklega skemmtileg verðlaun.

Verðlaunin eru: Út að borða með mér á ykkar eigin kostnaði :p ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 17:30:44 / maddi

Kvikmyndagagnrýni #2

Jæja þá kemur kvikmyndagagnrýni númer 2.

 

Ég og Ólafur tókum okkur dvd á laugardagskvöldið. Því miður voru valmöguleikarnir ekki margir þar sem ég hafði séð nánast allt sem horfandi var á.

Fyrir valinu var myndin Spanglish sem kom út árið 2004.

Leikstjóri og höfundur handrits er James L. Brooks

Meðal aðalleikara eru; Adam Sandler, Téa Leoni, Paz Vega, Cloris Leachman og Shelbie Bruce.

Ég og Ólafur héldum að þarna værum við að detta niðrá einhverja magnaða gamanmynd en svo var ekki þó vissulega hafi hún átt sína fyndnu punkta.

Myndin fjallar um einstæða konu sem kemur til Bandaríkjana frá Mexíkó í leit að betra lífi. Hún fær vinnu hjá vel efnaðri fjölskyldu þar sem heimilis lífið er ekki alveg eins og það ætti að vera. En án þess að segja of mikið þá á eftir að ganga á ýmsu og lendir Flor aðal söguhetjan oft milli steins og sleggju hvað varðar heimilislíf vinnuveitendana.

Cloris Leachman er stórgóð í sínu hlutverki ásamt litlu stelpunni Shelbie Bruce en aðrir eru þokkalegir.

Ég nenni í rauninni ekki að tala um þessa mynd því ég var fyrir vonbrygðum því ég bjóst við að sjá æjilega gamanmynd en þetta var nú svona sitlítið af drama og gamani.

Einkun: *1/2

Einnig horfði ég á Run Away Jury en þar sem ég nenni ekki að skrifa meira þá kemur hún líklega á morgun:)

Heyrumst


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 14:42:43 / maddi

Were should I go with this

Sælir veriði kæru vinir.
Ég hef nú æltað mér fyrir löngu síðan að vera búinn að henda einhverju herna inn en eitthvað hefur ritunarefni látið bíða eftir sér og þegar ég byrja núna að skrifa er ég ekki alveg viss um hvert þessi færsla stefnir því ég hef í rauninni lítið að segja. En við skulum nú lesa aðeins lengra og sjá hvert þessi færsla stefnir.

Ég ætla mér nú að halda áfram með mína kvikmyndagagnrýni en ég hef bara ekki tekið video né farið í bíó síðan four Brothers. En Þó var keypt ný(gömul) dvd mynd inná heimilið og var það hin eina sanna "Big" með engum öðrum en Tom Hanks.
Það þekkja flestir þá mynd og verð ég að segja að það er algjör snilld að fylgjast með Tom Hanks leika svona ungan. Maður sér það strax þarna hversu góður leikari Tom Hanks er og enginn furða að hann sé kominn svona langt. Þessi mynd krefst nú s.s. ekki mikils af honum enda er þetta gamanmynd í svona léttum dúr. En ég ætla ekki að vera með fleiri útlisingar á þeirri mynd. Hvet bara alla til að taka þessa mynd næst þegar þeir taka video, ábyggilega hægt að taka hana sem gamla. Þetta er engin heimsklassa mynd en maður fekk skemmtilegt flash back frá gamalli tíð þegar maður var að horfa á myndina.

Jæja þá er komið efni fyrir pistil. Ég tala við góðvin minn Ólaf Már og hann benti mér á að skrifa um vináttu.

Þannig að hér kemur það.

Enginn ætti að fara í gegnum lífið án þess að upplifa sanna vináttu. Ég hugsa að það sé ekkert í þessum heimi sem jafnast á við það að eiga góða vini. Ég hef í gegnum tíðinna verið með ákveðnar skoðanir og segji þær hispuslaust. Ég ætla tala um þetta viðfángsefni útfrá minni hlið en ég veit að þetta er svipað hjá körlum og konum. Ég hef svo oft séð það gerast að þegar vinir manns eða kunningjar eignast kærustu að þann tími sem maður sér þá verður gjörsamlega að engu. Það er bara gott og blessað að menn eyði tíma með kærustu sinni og sá tími er oftast tekin frá vinunum. En það er alltof of sem að menn gjörsamlega hætta að láta sjá sig hvað þá að heyra í þeim. Það er eins og það sé enginn tími fyrir neitt annað en nýju kærustuna. Passið ykkur á þessu! Ég hef svo oft séð þetta gerast hjá mínum vinum og kunningjum og þá segji ég alltaf við þá "kærustur koma og fara, þú veist aldrei hvenar slitnar uppúr ástarsambandi en ef þú ræktar vini þína þá býrðu að góðum vinum alla ævi". Ég hef ávallt reynt að rækta samband við vini mína eins vel og ég get( of vel að mati kærasta minna í gegnum tíðina, því þeim finnst þær sjaldan fá nægan tíma;) ég held t.d. enþá sambandi við þá stráka sem ég var með á leikskóla og fór í gegnum grunnskólan, + þá kynntist ég alveg einstökum vinahóp þegar ég kom til akureyrar og fór að hefja nám. Þó vil ég benda á eitt að þó að þessi pistill komi kanski illa út fyrir kærustur, þá vil ég nefna að kærasta manns er oftast líka þinn besti vinur, þannig vissulega þarf að huga að þeim og gefa þeim tíma.
Ég vil bara segja að án vina minna væri heimurinn aðeins svarthvítur en í stað er líf mitt litríkari en regnbogin slíkur er vinahópurinn.

Ég gæt haldið áfram endalaust að tala um þetta efni en Óli gamli er orðinn óþolimóður þannig ég segji þetta got´t í bili. Bæti kanski einhverju við þegar tækifæri gefst.

Kv. Maddi litríki


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 12:48:48 / maddi

Kvikmyndagagnrýni

Mér datt í hug í gærkveldi að þar sem ég horfi mjög mikið á video og fer gjarnan í bíó þá ætti ég að skrifa smá svona kvikmyndagagnrýni.

Í gær horfði ég á myndina four Brothers.

Myndinn byrjar þannig að móðir þeirra, sem er svona blanda af Móðir Teresu og gömlu gráhærðu konunni í Judging Amy. Hún er s.s. þessi kona sem hefur tekið marga götu unglingana og komið þeim í fóstur og hjálpað þeim að komast af götunni s.s. algjör dýrlingur. En þó voru 4 undir drengir sem voru það klikkaðir að enginn vildi taka þá að sér þannig hún ætleiddi þá alla. Tveir eru hvítir og tveir svartir og þar að meðal karakterinn sem Mark Wallberg leikur.

Allavega, bræðurnir eru orðnir fullorðnir og fór hver í sína áttina, þeir eru þó kallaðir saman til að vera við jarðaför móður þeirra sem að virðist var skotinn í búðarráni. Þegar þeir koma til baka fara þeir sjálfir að kanna málið og komast að því að þetta var ekkert venjulegt búðarrán heldur hrein og bein aftaka á móður þeirra.

Síðan fjallar myndin um það hvernig þeir rekja leiðinna að þeim sem framdi verknaðinn.

Mark Wallberg er mjög svalur í þessari mynd, hann leikur þennan harða glæpamann sem svífts einskiss til að ná sýnu fram en þó fær maður að sjá tilfinningalegu hliðina hjá honum í garð móður hans. Karakterarnir eru skemmtilegir sérstaklega bræðurnir fjórir og leikurinn er bara fínn.

Það er ekkert stórkostlegt við þessa mynd og heldur ekkert slæmt við hana. Þetta er fínasta mynd og bara alveg 550króna virði. ´Hún fær **1/2 í einkunn


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 18:19:55 / maddi

Hamingja?

Ég hef verið að pæla.Hvað er það sem ræður þínu svari þegar þú ert spurður að því hvort þú sért hamingjusamur. Hvað gerir það að verkum að þú svarar spurningunni já eða nei. Hvað er það að vera hamingjusamur? Er það sama og vera glaður? Hvað er að vera glaður? Er það sama og ánægður?

1Ég segji já við spurningunni "ég er hamingjusamur útaf því að........"

2Ég segji nei við spurningunni "ég er ekki hamingjusamur útaf því að......."

Endilega komið með ykkar hugmynd um þetta og endilega haldið áfram með annaðhvort setningu 1 eða 2 og segjið okkur útaf hverju þið eruð hamingjusöm eða óhamingjusöm.

Sá sem mun fyrstur commenta á þetta, á hrós skilið því það er fáránlega erfitt að commenta fyrstur á svona persónulegt umræðuefni.

Útfrá hverju svarið þið spurningunni ertu hamingjusamur/hamingjusöm?

Kv Mr. M


» 16 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 22:46:13 / maddi

skoða

Tékkið á þessu.

http://www.heidmar.de/

maður á frændur víða.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 15:10:46 / maddi

Hvernig kisser?

Rakst á þetta próf í gegnum aðra bloggsíðu. Ákvað að taka það og útkoman var þessi.

You're a Freaky Kisser
When you kiss, you want to experience something new
A new technique, a new partner, a new piercing...
And your own personal kissing style is very unpredictable
There's no saying where your tongue or hands will go


Mér finnst þetta nú ekki alveg eiga við mig en þessi net próf ljúa sko ekki þannig best að taka þessu bara þegjandi og hljóðalaust. Gaman að þessu.


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 16:22:47 / maddi

Lífið þessa dagana.

Það er nú kanski ekki neitt sem brennur á mínum vörum sem ég verð að koma á framfæri heldur ætla ég bara að halda smö tölu um hvað sé búið að vera gerast og kanski tína eitt og annað til.

Það ber kanski helst að nefna að við skírðum um helgina og fekk stúlkan nafnið Birta Mjöll sem mér finnst bar einstaklega fallegt og gott nafn. Sú litla er alveg yndisleg, svo ljúf og góð. Aldrei nokkurntíman hefði ég haldið að maður ætti eftir að tengjast einhverri manneskju svona mikið. Hver einasti dagur hefur verið ný upplifun síðan hún kom og vona ég að það muni verða svoleiðis áfram. En allt í heiminum er hverfult og áður en maður veit af getur allt verið tekið frá manni. Heimurinn eins og maður þekkir hann getur orðið að svartholi á augabragði þannig að njótum þess að vera saman og lifum hvern dag eins og hann væri okkar seinasti saman.

Tengdó komu og voru hjá okkur í rúma viku fyrir skírnina. Það var bara nice að hafa þau hjá okkur og vil ég þakka þeim kærlega fyrir hjálpina, þetta hefði verið illfært án ykkar. Smá orðsending til þín villi, ég náði nú ekki að segja þér það áður en þú fórst en mér finnst þú alveg einstakur maður, svo hlýr og góður og við náum alveg helvíti vel saman. Var þér alveg ótrúlega þakklátur eftir þetta stutta spjall okkar daginn eftir skýrnin

Einnig vil ég þakka mömmu og pabba æðislega vel fyrir. Þau sáu um mestan hluta veislunnar, mamma gerði þessa frábæru skírnartertu og hún var ekkert smá flott hún gerði einnig helling af öðrum kökum og sinn fræga aspas rúllutertu rétt. Einnig græjuðu þau húsið og hjálpuðu okkur að ganga frá eftir skírnina. Ég fullyrði það að án ykkar hefðum við ekki getað haldið þessa skírn. Takk æðislega fyrir alltsaman.

Einnig þakkir til ömmu og afa fyrir að opna húsið þeirra fyrir okkur og gestum okkar.

Einnig vil ég þakka öllum þeim sem komu í veisluna okkar og þá sérstaklega þeim sem komu að sunnan og lögðu á sig þetta ferðalag til að gleðjast með okkur. Addi, balli og ingó, ég hefði ekki viljað skíra án ykkar þannig takk fyrir að koma. Einnig þakkir til Veigu og fjölskyldu fyrir að koma, það var æðislegt að sjá ykkur aftur.

En jæja ég er e-d hálf tussulegur og hef verið seinustu daga t.d. 4 dagurinn í röð sem ég er með dúndrandi hausverk þannig ég læt þetta gott í bili.

Munið að vera góð hvert við annað.

Madison hefur talað.


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 12:07:29 / maddi

25,jan

Ég ákvað að henda hérna inn smá tuggu einungis vegna þess að ég sé að það hafa margir verið að kíkja hérna inn seinustu daga og hefur mér þótt það leiðinlegt að aðdáendur mínir hafa komið að tómum kofanum. Eitthvað er nú traffíkin búinn að mínka á síðuna þar sem menn láta ekki bjóða sér það endalaust að fá ekkert bitastætt frá MR. Madison. Þeir sem koma hérna inn eru eins og blóðsugur sem koma í þeirr von um að drekka í sig fróðleik og áhugaverðum athugasemdum sem vella oft uppúr sjálfum mér.

Það er s.s. allt gott að frétta. Litla snúllan mín er alveg ótrúleg, hún er minisegja farinn að vera pínu pabba stelpa strax. Hún er orðinn svo mikill frekja að hún getur svoleiðis orgað á mjólkina eða þá að hún vill að foreldrar hennar skipti á sér 1,2 og 10 en strax og það er búið að sinna því þá þagnar hún og setur upp geyslabauginn. Pabbi mun samt sjá til þess þegar hún er orðinn eldri að hún mun ekki komast upp með neina frekju og mun ég verða fastur fyrir, og standa við mínar ákvarðanir. Það verður ekkert "æji pabbi og grenjur sem hagga því" ;)

En vitið hvað, það er alveg glatað að halda úti svona bloggi. Maður nennir eiginlega aldrei að skrifa neitt á það. En ég ætla ´þráast aðeins lengur við og sjá til hvort þetta fari ekki að koma....

Vi höres

MR. M


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 11:55:49 / maddi

Myndir myndir

Við erum nú á fullu svona inn á milli að setja myndir inná barnaland af litlu prinsessunni. Slóðinn inná siðuna okkar er http://www.barnaland.is/barn/38112

Ef ykkur vantar lykilorðið þá endilega sendið mér bara sms í simann minn 8622211


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5